Wednesday, April 18, 2007

Afmæli!!

Eins og alþjóð veit á ég afmæli 9. maí næstkomandi. Eins og alþjóð veit einnig er ég stödd í Afríku um þessar mundir. Afmælisgjafir og Afríka fara ekki vel saman. Þess vegna hafði ég hugsað mér að þeir sem höfðu hugsað sér að gefa mér afmælisgjöf gætu einfaldlega lagt pening inn á bankareikning minn, í stað þess að kaupa eitthvað rándýrt íslands dót með rándýrum pósti. Sniðugt, ekki satt?

Ég vil samt ekki að þið haldið að ég sé að heimta pening í massavís, þetta er þvert á móti mun ódýrari kostur fyrir þá sem ætluðu hvort sem er að gefa mér eitthvað. Og fyrir litlar 500kr get ég keypt heilan helling hér, reynið að gera það á Íslandi! ;)

Því miður er heimabankinn minn með eitthvað rugl svo ég veit ekki reikningsnúmerið mitt, en um leið og ég kemst að hvað það er skal ég pósta því hér.

7 comments:

Unknown said...

Það var mikið að einhver skrif komu.Mun senda money .

Tóta said...

hehe!

Ef þú lofar að kaupa eitthvað úti á gangstétt er aldrei að vita hvort þú fáir eitthvað?

Anonymous said...

takk kærlega fyrir mína dömu. kristín maría var hæstánægð með dúkkuna....og sómir sér vel á bleikum stól í herberginu hennar;)

en endilega sendu okkur nr. þitt. aldrei að vita nema litla frænka sendi þér pening fyrir kók og snakki;)

ástarkveðjur til africa.

Anonymous said...

Hmmmm...... á bara að fara að setja fram styrktarreikning á síðuna?!?!?!´

Fer ekki ofan af því að þú sökkar sem bloggari. Spurning hvort það sé svona leiðinlegt í Afríkunni að þú hafir ekki frá neinu að segja. Held reyndar að svo sé ekki. Fréttir kona og myndir takk.

Ég er að spá í að leggja ekki pening inn á þig, heldur senda rándýran pakka frá Íslandi. Hann gæti reyndar komið í seinna fallinu-held að það sé lokað í Iðu núna vegna stórbruna ársins í miðbænum. Er að vinna í málunum.

Knús á þig og þína

Reynimelsgellan

Hrafnhildur said...

mér finnst nú allavega að við eigum skilið að fá myndir! Það gengur ekki að vera í ljósmyndanámi og get ekki sett nokkrar myndir á netið fyrir vini og ættingja ;)
Mæli með picasa - og þá picasaweb ;)

Afriku Margret said...

Hrafnhildur ég verð þá að mæla með að þú gefir mér skanna í afmælisgjöf, því ég tek bara myndir á filmu! Bwhaha!!

Hrafnhildur said...

fuss það hlýtur að vera skanni í skólanum hjá þér og svo veit ég að þú átt þessa líka fínu canon 20D sem er digital!!! ha ha! nota hana stelpa