Thursday, February 1, 2007

Margrét lifir

Þrátt fyrir allt er Margrét enn á lífi!

(Internet tenging er eitthvað sem gerist í fjarlægri framtíð, svo þið verðið að afsaka fjarveru mína í netheimum)

Og það sem meira er, lífið er bara nokkuð gott. Ég er flutt til Johannesburg, í lítið dúllu úthverfi sem heitir Bedfordview. Bedfordview er svona eins og Seltjarnarnes: þetta er svona ríka fólks bær við jaðar Jo'burg sem var einu sinni úthverfi en er núna orðið að sér bæ. Svona eins og Nesið, það er spes bær en er samt eiginlega Reykjavík.. þið fattið mig.. En allavega, hér í bænum er allt til alls, stórt og flott moll, nóg af búðum, veitinga- og skemmtistöðum og miðað við restina af Suður Afríku er þetta mjög safe staður.

Svo viljið þið örugglega vita í hvers konar rottuholu ég bý! Nújæja, íbúðin mín er 15 mín rölt frá skólanum og 5 mín frá búð/bakarí og pizzastað. Íbúðin er næstum því heilt hús, en í einhverri pínu holu á endanum býr annað fólk. Ég er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, stórt opið eldhús og fína stofu. Húsgögn fylgdu með og leigan er litlar 35þús á mánuði, rafmagn og vatn innifalið. Og áður en þið spurjið "af hverju þarftu 2 svefnherbergi??" þá þarf ég þess svo sem ekki, en fyrir þetta verð, þessa staðsetningu og að husgögn fylgi með er mér slétt sama þó ég hafi 1 autt herbergi! Og svo get ég alltaf notað það sem myrkaherbergi :) Svo er ég líka með svefnsófa svo ef einhverjum dettur í hug að koma í heimsókn þá á ég herbergi OG baðherbergi handa ykkur... ;)

Skólinn er líka byrjaður, hann er nú ástæðan fyrir að ég var að villast hingað.. nú er ég búin að vera í skólanum í tæpar 2 vikur og gengur bara vel. Hann byrjar rosa hægt þar sem sumir hérna kunna ekkert, en mér skilst að þetta fari bráðum að verða spennó og ég geti jafnvel farið að sýna ykkur myndir. Skólinn er allavega rosa fínn, æðislegir kennarar og starfsfólk og allt alveg tipp topp. Ritarinn fór meira að segja með mér að versla rúmföt fyrsta daginn minn hérna.. sjáið þið fyrir ykkur einhverja grumpy kellingu í HÍ fara með nemendunum í Hagkaup? Tjah neeee...

Og síðast en ALLLS EKKI síst! Ég á bíbí!!! Hann/hún heitir Hnoðri og er 16 vikna Black Capped Conure og er alveg ótrúlega lítill og sætur og krúttulegur og elskar að kúra og sitja á öxlinni á mér! Hann er núna bara pínu lítill en verður um 25 cm fullvaxinn. Í öðrum bíbí fréttum er það helst að elsku sæti dúllu Jón minn yfirgaf þennan heim daginn eftir að ég fór út.. hann hefur fundið það á sér greyi kallinn að hans tími var kominn :(

PS. Vinir og vandamenn, ég hvet ykkur til að senda mér myndir af ykkur! Myndin þarf að vera sæmilega góð og nógu stór til að prenta 10x15cm. Pælingin er að láta prenta myndirnar ut og hengja upp á vegg. Einfaldast er ef þið sendið myndirnar á emailið mitt; margrethinmikla (hjá) hotmail.com

10 comments:

elú said...

ég hélt þú ættir myndir af mér ?

Hrafnhildur said...

Ji spennó! það er nú gott að það er aukaherbergi þegar ég kem í heimsókn ;p Þú ættir kannski að fara að stunda páfagaukainnflutning? eru þeir ekki ódýrir þarna? getur selt þetta á fleiri hundrum þús hérna :p

Hrafnhildur said...

og já, ég get alveg sent þér mynd ;p Hún verður samt að vera stór uppá vegg!!

Ásta Heiðrún Elísabet said...

þú ert doldið græn á þessari mynd

hengja myndirnar upp á vegg? er það ekki yfirskin? mhm, ætlar pottþétt að framkvæma vúdúgaldra á þeim!
margrét, sé alltaf í gegnum þig.

e.s. rúv biður að heilsa

Unknown said...

Gaman að sjá að þú bloggar er búin að bíða svo lengi.áttu ekki myndir inni á tölvunni af okkur ?

Unknown said...

margrét, þú þarft miiiiklu stærri mynd af mér;) og hvað þá af rúsínubollunni..hehehhee.

gott annars að heyra að þú lifir í vellystingum í afríkunni. aldrei að vita nema maður kíki í heimsókn..svona fyrst það er BÆÐI moll og bakarí rétt hjá þér;)

kossar og knús úr kleifó, þar sem beðið er eftir ilmandi lasagna úr ofninum (með lauki;) hahaha

Unknown said...

haha að sjálfsögðu heitir páfagaukurinn Hnoðri! Meikar fullkomið sens :) allavega, ég held að þú eigir alveg nóg af myndum af mér.. hef ekki breyst það mikið...

Bjarney said...

Haha...gott nafn á páfagaukinn ;) Þá saknarðu okkar hnoðranna kannski ekki jafn mikið :p Svo stefni ég á að kíkja í heimsókn til þín þegar ég læt verða að heimsreisunni minni :)
P.s. Mynd kemur til þín fljótlega :)

Tóta said...

Mér heyrist nú á öllum að þeir séu rosa hissa að þig vannti myndir af okkur.
Þú átt allar bestu myndirnar af okkur á tölvunni þinni.
En þú mátt alveg skella mynd af mér með músís upp á vegg.
Þú mátt jafnvel veggfóðra veggina með myndum af mér ef þú villt.
Þú ættir allavega að eiga nóg af myndum af mér til .ess ;)

Afriku Margret said...

Pfff þið þarna apar sem segið að ég eigi myndir af ykkur, þessu var að sjálfsögðu bara beint til hinna apanna!

Ég á myndir af Elú og Kidda, Toby og Guðrúnu, og eitthvað af familíunni.. en ég vil myndir af ÖLLUM!!