Tuesday, August 28, 2007

Winning Streak

Margrét er aldeilis að gera sig þessa dagana..

Var að koma úr skólanum þar sem þeir dæmdu okkar "specific briefs". Þar fengum við öll mismunandi myndir sem við áttum síðan að taka sjálf. Ég fékk frekar óspennandi mynd af mann skugga sem fellur á svefnherbergis vegg. Voða gaman. Átti von á dauða mínum. En nei. Nær Margrét þessu ekki bara með glans! Er ekki enn búin að fá endanlega einkunn en það hljómaði í kringum 8 af 9 mögulegum. Ekki dónalegt það.

Svo um daginn áttum við að taka mynd af innanhúss arkitektur. Ég veit álíka mikið um þessháttar ljósmyndun og meðal íslendingur veit um Zimbabwe. Sem sagt ekkert. Fór svo í örvæntingu minni á hótel og tók 2 myndir. Tvær. Aldeilis að ég var dugleg að finna myndefni *hósthóst*. valdi svo eina af stofu með arin og stólum. Voða simetrískt. Voða flott? Varla. En náði ég? Það held ég nú! Fékk heila 4.03 af 4 mögulegum (allt umfram er bónus einkunn). Haha aldeilis að maður rústaði þessu!

Svo náttúrulega um daginn rústaði ég hljómsveitamyndatökunni. Múhaha. Fékk 10 af 10 mögulegum fyrir myndina sjálfa. Þurftum reyndar líka að púsla saman collage úr myndunum til að búa til plötuumslag. En viti menn, ég er ljósmyndari, EKKI grafískur hönnuður! Fékk samt 8 fyrir það, ekkert slæmt svo sem.

Heildareinkunn mín þessa stundina er eitthvað í kringum 85%. Ekki margir háskólanemar sem geta montað sig af svo myndarlegri einkunn. Múhaha. Mont mont.

PS. Ég veit að þið eruð öll að væla að þið viljið sjá myndir. En ég tek ennþá allt á filmu. Ef einhverjum langar að gefa mér filmuskanna skal ég sýna ykkur allar þær myndir sem þið viljið. En þangað til verðiði bara að hætta að kvarta og bíða þar til við förum að taka á digital. Það styttist í það.

PPS. Núna mega allir commenta og segja "Vá Margrét vá! Þú ert ótrúleg!" :)

7 comments:

Anonymous said...

"hrós"

Hrafnhildur said...

Vá Margrét vá! Þú ert ótrúleg!

Anonymous said...

Vá Margrét vá! Þú ert ótrúleg!

Unknown said...

ég vil ekki vera eins og allir aðrir þannig að ég ætla að segja Vá Margrét vá! Þú ert ótrúleg! :D

Anonymous said...

vá Margrét vá! Þú ert ótrúleg!!!

En svona seriously, ótrúlega flottar einkunnir!! Til hamingju með það. Greinilega að taka þetta í *bíb*

Kv. Bernadetta.

Anonymous said...

Vá Vá Vá

Anonymous said...

Nau Margrét nau! Þú ert rosaleg!!
Vó ég er svo frumleg.
En já, glæsilegt hjá þér! :) U make me proud my child.

Evita